Frítt í sund og á skíði í vetrarfríinu

Frítt í sund og á skíði í vetrarfríinu

Akureyrarbær býður grunn- og framhaldsskólanemum á Akureyri í sund og á skíði í vetrarfríi grunnskólanna. 

Fimmtudaginn 3. mars og föstudaginn 4. mars geta grunn- og framhaldsskólanemar farið í skíðalyfturnar og sundlaugar Akureyrar án endurgjalds. 

Grunnskólanemendur gefa upp kennitölu og nafn skóla í afgreiðslu og framhaldsskólanemar í VMA og MA framvísa nemendaskírteinum.

Í tilkynningu um málið á vef bæjarins segir að nauðsynlegt sé þó að að eiga rafrænt kort eða kaupa slíkt á 1.000 krónur í skíðalyfturnar. Kortin fást í afgreiðslu Hlíðarfjalls og á N1.

UMMÆLI

Sambíó