Frozen hátíðarsýning Steps Dancecenter í HofiMynd/Linda Ólafsdóttir

Frozen hátíðarsýning Steps Dancecenter í Hofi

Þann 30 nóvember mun Steps Dancecenter á Akureyri halda hátíðardanssýningu í Hofi. Nemendur skólans munu sýna atriði byggt á ævintýrinu Frozen.

„Áhorfendur geta hlakkað til stórbrotinnar upplifunar þar sem sagan af systrunum Elsu og Önnu, snjókarlinum Ólafi og öðrum persónum úr heimi Frozen er túlkuð á einstakan hátt í gegnum fjölbreytta dansa,“ segir í tilkynningu frá dansfélaginu

Tvær sýningar verða, sú fyrri kl. 12:00 og sú seinni kl. 14:00.

„Viðburðurinn er fjölskylduvænn og býður upp á eitthvað fyrir alla aldurshópa – frá glæsilegum dansatriðum yngstu nemenda til áhrifamikilla frammistaða reyndari dansara. Þessi hátíðarsýning markar upphaf aðventunnar á Akureyri og lofar að færa gestum gleði og töfra,“ segir í tilkynningunni.

Miðasala er á mak.is eða í miðasölu Hofs.

Steps Dancecenter er listdansskóli á Akureyri og fagnar 10 ára afmæli sínu í ár, Við erum virkilega stolt af því að veita dansáhugafólki á öllum aldri vettvang til að njóta danslistarinnar, efla hæfileika sína og gleðja samfélagið með sýningum sem standa upp úr. Æfingar hafa staðið yfir í margar vikur og eru nemendur okkar frá 2ja ára aldri og eldri að stíga á svið full eftirvæntingu.

Sambíó

UMMÆLI