Prenthaus

Fyrstu skóflustungurnar að nýjum keppnisvelli KA og stúku á KA-svæðinu voru teknar í dagMynd: KA.is

Fyrstu skóflustungurnar að nýjum keppnisvelli KA og stúku á KA-svæðinu voru teknar í dag

Í morgun voru teknar fyrstu skóflustungurnar að nýjum knattspyrnuvelli Knattspyrnufélags Akureyrar og nýrri stúku sem byggð verður á svæðinu. Einnig verður byggður upp gervigrasvöllur.

„Það má með sanni segja að nú sé langri bið félagsins eftir keppnisaðstöðu á KA-svæðinu að ljúka en framkvæmdir á svæðinu voru settar á ís árið 2008 vegna fjármálakreppunnar. Það var því eðlilega mikil gleði er þau Rósa María Hjálmarsdóttir og Mikael Breki Þórðarson tóku fyrstu skóflustungurnar sem markar upphafið af uppbyggingunni sem við höfum beðið svo lengi eftir,“ segir á vef KA.

Mikil uppbygging hefur átt sér stað á KA-svæðinu í sumar en skipt var um gervigras á vellinum sem settur var upp á svæðinu árið 2013 og það gamla nýtt við gerð nýs vallar. Hinn nýi komandi keppnisvöllur verður því þriðji gervigrasvöllurinn á svæði félagsins.

„Það eru því ansi spennandi tímar framundan hjá okkur KA-mönnum og ljóst að öll aðstaða til knattspyrnuiðkunar verður innan skamms með besta móti. Þá er árangur okkar liðs í sumar algjörlega stórkostlegur og verður spennandi að fylgjast með strákunum okkar í toppbaráttu Bestu deildarinnar sem og í undanúrslitum Mjólkurbikarsins,“ segir á vef KA.

Sambíó

UMMÆLI