Gaber Dobrovoljc til liðs við KA

Gaber Dobrovoljc til liðs við KA

Gaber Dobrovoljc, 29 ára gamall miðvörður frá Slóveníu, hefur skrifað undir samning við knattspyrnudeild KA og mun spila með liðinu út núverandi tímabil í Bestu deild karla. Gaber kemur til ka frá NK Domžale í Slóveníu.

„Það var ljóst að KA liðið þurfti á nýjum leikmanni að halda eftir að lánssamningur við Oleksiy Bykov rann út og erum við afar spennt fyrir því að fá Gaber til liðs við okkur,“ segir á vef KA.

Gaber kemur úr unglingastarfi NK Domžale og hefur leikið allan sinn feril með liðinu fyrir utan eitt ár með Fatih Karagümrük í Tyrklandi. Með Domžale varð Gaber slóvenskur bikarmeistari árið 2017 og lék auk þess 25 evrópuleiki með liðinu. Á sínum tíma lék Gaber 27 leiki fyrir yngrilandslið Slóveníu sem og tvo leiki fyrir B-landslið.

„Við bjóðum Gaber innilega velkominn í KA og hlökkum til að sjá hann í gulu og bláu treyjunni. Það eru spennandi tímar framundan hjá okkur í sumar en KA liðið er í 3. sæti Bestu deildarinnar með 27 stig eftir 14 leiki og er þar að auki komið í 8-liða úrslit Mjólkurbikarsins þar sem strákarnir taka á móti Ægi þann 10. ágúst næstkomandi,“ segir á vef KA.

UMMÆLI