Gefa út bæði rokk og rapplag: „Við erum SviMA 21“

Gefa út bæði rokk og rapplag: „Við erum SviMA 21“

Meðlimir sketsafélagsins SviMA í Menntaskólanum á Akureyri hafa verið iðnir við kolann undanfarin misseri en þeir gáfu nýverið út sinn fyrsta þátt á skólaárinu. Ásamt þættinum eru þeir búnir að gefa út 3 lög og 2 tónlistarmyndbönd.

Lögin eru öll pródúseruð af Hreini Orra Óðinssyni einum af meðlimum nefndarinnar. Hann hefur verið að gera tónlist í mörg ár með eldri bróður sínum Birki Blæ Óðinssyni sem hefur verið að vekja mikla athygli með góðri frammistöðu í Sænska Idolinu.

20.september síðastliðinn gáfu þeir út kynningarmyndband sitt sem kynnti til leiks alla meðlimi nefndarinnar fyrir skólaárið. 54 sekúndur inn í myndbandið tilkynna þeir landsmönnum að þeir séu „SviMA 21“ og í gang fer fyrsta lag ársins. Rapplag. Fyrsta rapplag í sögu nefndarinnar. Það fer ekkert á milli mála í myndbandinu að strákarnir eru alvöru stælóttir spaðar af nýja skólanum sem rappa í laginu um djammið, bíla og peninga.

SviMA nefndin skólaárið 2021-22

Það dugði strákunum ekki að búa einungis til fyrsta rapplagið í sögu SviMA. Þeir ákváðu því að enda fyrsta þátt ársins á fyrsta rokklagi nefndarinnar líka. Lagið ber nafnið Sex, Drugs & Rock n Roll“ en við lagið gerðu þeir epískt tónlistarmyndband þar sem þeir klæða sig upp sem rokkstjörnur og sýna okkur lífstílinn sem fylgir því.

I fell in love, with sex, drugs & Rock n Roll“

SviMA þættir hafa oft verið umdeildir fyrir grófan og steiktan húmor en í ár er engin breyting á því. Í fyrsta þætti ársins eru fréttir, vakningar, viðtöl og annað skemmtilegt.

Fyrsti þáttur ársins

Nenfdina skipa Bergsveinn Ari Baldvinsson, Bjarni Guðjón Brynjólfsson, Birgir Valur Ágústsson, Davíð Már Guðlaugsson, Egill Elvarsson, Einar Ingvarsson, Einar Svanberg Einarsson, Helgi Hrafn Jónsson, Hreinn Orri Óðinsson, Jakob Franz Pálsson, Kári Gautason og Örvar Óðinsson(Ö).

UMMÆLI

Sambíó