Gellur sem mála í bílskúr í Deiglunni

Gellur sem mála í bílskúr í Deiglunni

Gellur sem mála í bílskúr munu halda sýningu í Deiglunni dagana 30. maí til 31. maí og 6. júní til 7. júní. Sýningin verður opin frá klukkan 14:00 til 17:00 þessa daga.

Í hópnum eru átta listamenn sem hittast vikulega og mála saman í bílskúr. Hópurinn kynntist í Listfræðslunni á Akureyri og stofnaði klúbbinn Gellur sem mála í bílskúr í janúar 2016. Markmiðið er að hittast og styðja hvert annað í listsköpuninni og hafa gaman.

Hópurinn velur sér sameiginlegt þema fyrir hverja sýningu en hver og einn vinnur svo á persónulegan hátt með ólíkri nálgun á viðfangsefnið og útkoman verður skemmtileg blanda. Þema sýningarinnar er er litríkar gellur og á sýningunni verða verk af ýmsum toga  unninn í akríl, olíu og í vatnslitum.

Í hópnum eru Anna María, Barbara, Björgvin, Harpa, Jóhanna, Jónína, Kristín og Líney.

Facebook: www.facebook.com/gellursemmala
Instagram: @gellursemmala

Sýningin er unnin í samstarfi við Gilfélagið.


UMMÆLI

Sambíó