Gilfélagið í 30 ár

Gilfélagið í 30 ár

30 ára Sögusýning Gilfélagsins og sölusýning á völdum verkum í eigu félagsins opnar laugardaginn 8. janúar, kl 14.00, í Deiglunni, Kaupvangsstræti 23 á Akureyri.

Til að fagna 30 ára afmæli Gilfélagsins síðastliðið haust hafa verið haldnir nokkrir viðburðir í Deiglunni sal Gilfélagsins í Listagilinu á Akureyri. Nú er komið að lokaviðburði þessara tímamóta.

Laugardaginn 8. október opnar 30 ára sögusýning Gilfélagsins. Á sýningunni er gerð grein fyrir tilurð félagsins og sögu. Gilfélagið markaði upphaf menningarstarfs í Grófargili á Akureyri, sem þá hafði gengið undir nafninu Kaupfélagsgil um nokkurra áratuga skeið vegna mikilla umsvifa Kaupfélags Eyfirðinga í gilinu. Á sýningunni má sjá fjölda ljósmynda, prentað efni og veggspjöld frá 30 ára sögu félagsins.

Auk sögusýningarinnar verður við þetta tækifæri opnuð sölusýning á verkum í eigu Gilfélagsins, flest eru verkin hluti af gjöf íslensks listafólks til félagsins við stofnun þess. Eftirtaldir listamenn eiga verk á sýningunni: Björn Birnir, Einar Hákonarson, Guðjón Ketilsson, Guðmundur Ármann, Helgi Vilberg, Jón Laxdal, Leifur Breiðfjörð, Ragna Hermannsdóttir, Tumi Magnússon, Ursula Gullow, Valgerður Briem og Þóra Sigurðardóttir.

Sýningin opnar kl 13.00 á laugardaginn 8. janúar og verður opið til kl.18.
Boðið verður upp á léttar veitingar.
Sýningin verður opin frá fimmtudegi til sunnudags til 23. janúar. Opnunartímar eru: 17 – 20, á virkum dögum og 14 – 17, um helgar. Framkvæmd sýningarinnar verður að öllu leiti í samræmi við gildandi sóttvarnarreglur.

Gilfélagið var formlega stofnað af áhugafólki um menningarstarfsemi 30. nóvember 1991. Stofnun Gilfélagsins markaði upphaf að uppbyggingu Listagilsins á Akureyri, þegar félagið tók yfir hluta húsnæðis í Grófargili sem þá hafði llokið hlutverki sínu sem iðnaðrhúsnæði og stóð autt. Með stuðningi Akureyrarbæjar rekur Gilfélagið fjölnotasalinn Deigluna og hefur umsjón með gestavinnustofu. Markmið félagsins er að efla menningar- og listalíf í bænum, auka tengsl almennings við listir og koma á samskiptum norðlenskra listamanna við innlenda og erlenda listamenn.

Í tilefni 30 ára afmælisins hefur félagið staðið fyrir eftirfarand viðburðum og sýningum síðan á haust mánuðum: Malpokar leyfðir, menningardagskrá Populus Tremula í Deiglunni þann 11. september, þá félagasýning Gilfélaga 14. – 19. október og afmælishátíð félagsins 16. október. Fyrirhugaðir eru fleiri tónlistar viðburðir í tengslum við afmælið þegar samkomur geta verið nokkuð eðlilegar, vegna COVID. Gilfélagið lítur björtum augum til framtíðarinnar og vonast til að vera áfram virkt og mótandi afl í deigu menningarframboðs á svæðinu um ókomin ár.

Nánari upplýsingar veita formaður Gilfélagsins, Aðalsteinn Þórsson s. 782 9015 og Guðmundur Ármann sýningarstjóri s. 864 0086

UMMÆLI