Glerárskóli fékk góðar gjafir frá Minningarsjóði BaldvinsVið afhendingu styrksins. Mynd: Glerárskóli.

Glerárskóli fékk góðar gjafir frá Minningarsjóði Baldvins

Glerárskóla voru færðar góðar gjafir á miðvikudaginn, úr minningarsjóði Baldvins Rúnarssonar, fyrrum nemanda skólans. Um var að ræða forláta Canon myndavél og aflmikinn Marshall ferðahátalara. Móðir Baldvins, Ragnheiður Jakobsdóttir, afhenti gjöfina fyrir hönd sjóðsins á fæðingardegi Baldvins en hann fæddist á Akureyri 15. janúar 1994. Með Ragnheiði í för voru Arnar Geir Halldórsson, vinur Baldvins og stjórnarmaður í minningarsjóðnum og Hermann Helgi Rúnarsson, bróðir Baldvins og starfsmaður Glerárskóla.

Baldvin lést á í faðmi fjölskyldunnar 31. maí, á síðasta ári eftir fimm ára baráttu við krabbamein í höfði. Hann hafði brennandi áhuga á íþróttum og stundaði knattspyrnu hjá Íþróttafélaginu Þór. Hann lagði skóla á hilluna eftir að veikindin fóru að herja á hann lagði þá þjálfum yngri flokka félagsins lið.

Minningarsjóði Baldvins Rúnarssonar er ætlað að styrkja einstaklinga, félög eða hópa á sviði íþrótta- og mannúðarmála.

Fréttin er tekin af vef Glerárskóla.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó