Goðafoss friðlýstur í dag

Goðafoss friðlýstur í dag

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra undirritar friðlýsingu Goðafoss í Skjálfandafljóti í dag, fimmtudaginn 11. júní kl. 15.

Umhverfisstofnun hefur lagt til við umhverfis- og auðlindaráðherra að Goðafoss í Skjálfandafljóti í Þingeyjarsveit verði friðlýstur sem náttúruvætti. Goðafoss er einn af vatnsmestu fossum landsins og greinist í tvo meginfossa og nokkra smærri. Ásýnd fossins er fjölbreytileg eftir vatnsmagni, veðurfari og árstíð. Fossinn er 9-17 m hár og um 30 m breiður. Landið við vesturbakka Goðafoss heitir Hrútey og afmarkast hún af Hrúteyjarkvísl sem greinist frá Skjálfandafljóti ofan við Goðafoss en sameinast fljótinu aftur alllangt neðar.

Þjóðsaga segir að Þorgeir Þorkelsson Ljósvetningagoði hafi varpað goðalíkneskjum sínum í fossinn i kjölfar þess að honum hafi verið falið það hlutverk að ná lögsáttum milli heiðinna manna og kristinna og hann hafi tekið upp nýjan sið. Af þessu á Goðafoss að hafa dregið nafn sitt.

Goðafoss er vinsæll ferðamannastaður og þangað kemur fjöldi ferðamanna allan ársins hring. Megin markmið með verndun svæðisins er að vernda sérstakar náttúruminjar, breytileika jarðmyndana og fossinn sjálfan, m.a. með því að viðhalda náttúrulegu vatnsrennsli í fossinn, vegna fegurðar og sérkenna og útivistargildis svæðisins.

Sambíó

UMMÆLI