Góðan daginn faggi á Akureyri

Góðan daginn faggi á Akureyri

Leikhópurinn Stertabenda og Þjóðleikhúsið í samstarfi við Samtökin ’78 leggja land undir fót í vikunni þegar leiksýningin Góðan daginn faggi fer í hringferð um landið. Sýndar verða boðsýningar fyrir elstu bekki grunnskóla á landsbyggðinni auk þess sem sýndar verða almennar sýningar á Akureyri, Egilsstöðum, Ísafirði, Neskaupstað og Patreksfirði. Leikferðin er framkvæmd með góðum stuðningi frá List fyrir alla.

Góðan daginn faggi sló sannarlega í gegn í Þjóðleikhúsinu á liðnu leikári, með yfir 40 uppseldum sýningum, einróma lofi gagnrýnenda og Grímutilnefningum auk þess sem lagið Næs úr sýningunni var lag Hinsegin daga 2022.

Höfundar verksins eru öll alin upp á landsbyggðinni. Bjarni Snæbjörnsson, leikari frá Tálknafirði, Gréta Kristín Ómarsdóttir, leikstjóri frá Hrísey og Axel Ingi Árnason, tónskáld frá Eyjafjarðasveit. Það er einlæg von þeirra að með sýningum á verkinu í elstu bekkjum grunnskóla og með almennum sýningum og umræðu sem það skapar verði hægt að vinna gegn einangrun hinsegin unglinga, ofbeldi, fordómum og hatursorðræðu sem hefur sýnt sig að undanförnum að færist í aukana.

Fyrstu sýningarnar verða á Akureyri 17. og 18. september en alls verða sýndar 17 sýningar á næstu 3 vikum fyrir hátt í 2000 unglinga auk þess sem sýndar verða almennar sýningar á Akureyri, Neskaupstað, Egilsstöðum, Ísafirði og Patreksfirði. Allt í allt verða því sýndar 22 sýningar og búist við 2000-3000 manns.

Góðan daginn, faggi er sjálfsævisögulegur heimildasöngleikur þar sem fertugur hommi leitar skýringa á skyndilegu taugaáfalli sem hann fékk upp úr þurru einn blíðviðrisdag. Eftir vandasaman leiðangur um innra líf sitt, fortíð og samtíma rekst hann á rætinn hommahatara á óvæntum stað. Verkið er byggt á dagbókum Bjarna Snæbjörnssonar, leikara frá yngri árum til dagsins í dag.

UMMÆLI