Gönguskíðasvæðið í Hlíðarfjalli opnað

Gönguskíðasvæðið í Hlíðarfjalli opnað

Búið er að opna gönguskíðabrautir í Hlíðarfjalli fyrir almenning. Í boði eru tvær brautir, 1,2 km og 3,5 km. Sporað verðu á þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum þegar veður leyfir. Þetta kemur fram á vef bæjarins.

Ágætt vetrarveður hefur verið á Akureyri undanfarið og þrátt fyrir að snjóalög séu með minnsta móti er færið samt gott.

Hægt er að kaupa gönguskíðakort og dagsmiða á netinu. Ekki þarf að fylla dagsmiðana inn á vasakort heldur er nóg að sýna kvittun í síma ef þess er óskað. Einnig má minna á að forsala vetrarkorta í Hlíðarfjalli er hafin og stendur fram að opnun svæðisins. Kortin eru seld í netsölu á heimasíðu Hlíðarfjalls. Farið er á sölusíðuna með því að smella á gulan takka efst til hægri á síðunni.

Stefnt er að því að opna skíðasvæðið 17.desember og jafnvel fyrr ef aðstæður leyfa.

Forsöluverð vetrarkorta:

Fullorðnir: 42.000 í stað 54.000
Börn: 7.300 í stað 9.600
Gönguskíði: 10.800 í stað 14.000

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó