Götulokanir á Akureyri yfir verslunarmannahelgina

Götulokanir á Akureyri yfir verslunarmannahelgina

Ákveðnar götu verða lokaðar á miðbæjarsvæði Akureyrar næstu daga vegna fjölskylduhátíðarinnar Einnar með öllu og fjallahlaupsins Súlur Vertical.

Þess er vænst að fjöldi fólks sæki bæinn heim og af þeim sökum og vegna ýmissa viðburða þarf að loka ákveðnum götum á miðbæjarsvæðinu tímabundið og takmarka umferð ökutækja annars staðar.

Á myndinni að neðan sjást helstu lokanir á miðbæjarsvæðinu.

Laugardaginn um verslunarmannahelgina fer fjallahlaupið Súlur Vertical fram. Af þeim sökum þarf að stýra umferð eða loka götum tímabundið á meðan keppendur hlaupa fram hjá.

Sunnudaginn 31. júlí verður hinn svokallaði Skógardagur í Kjarnaskógi. Búist er við góðri aðsókn og því er gott að skoða kortið hér að neðan til að sjá hvar má leggja og hvernig hægt er að komast inn á bílastæðin og frá þeim.

Upplýsingar og myndir af Akureyri.is


Goblin.is

UMMÆLI