Intersand MaxCare 12 kg | Gæludýr.is

Grunur um manndráp í Ólafsfirði

Grunur um manndráp í Ólafsfirði

Fjórir aðilar voru handteknir í nótt eftir að karlmaður fannst látinn í húsi í Ólafsfirði. Lögreglumenn frá Akureyri héldu þegar á staðinn og lögreglumenn á bakvakt á Tröllaskaga voru ræstir út. Einnig voru tveir sérsveitarmenn ræstir út frá Akureyri. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Norðurlandi eystra.

Þegar fyrstu lögreglumenn komu á vettvang, voru endurlífgunartilraunir hafnar á karlmanni, en hann hafði verið stunginn með eggvopni. Læknir og sjúkraflutningamenn komu einnig á vettvang en endurlífgunartilraunir báru ekki árangur og var maðurinn úrskurðaður látinn á vettvangi.

,,Fjórir aðilar voru handteknir í þágu rannsóknar málsins og njóta þeir allir réttarstöðu sakborninga á fyrstu stigum málsins og meðan aðkoma þeirra að málinu er rannsökuð. Enginn er eftirlýstur vegna þessa máls. Rannsókn málsins er á algjöru frumstigi og mikil vinna lögreglu framundan. Vegna rannsóknarhagsmuna er því ekki hægt að veita frekari upplýsingar um það að svo komnu,“ segir í tilkynningu lögreglu.

Ákvörðun um hvort farið verður fram á gæsluvarðhald yfir einhverjum sakborninganna verður tekin seinna í dag.

UMMÆLI