Hæfileikakeppni ungmenna í grunnskólum Akureyrar og nágrennisFiðringur er litli bróðir Skrekks og Skjálftans. Ljósmynd frá Skrekk.

Hæfileikakeppni ungmenna í grunnskólum Akureyrar og nágrennis

Fiðringur á Norðurlandi, hæfileikakeppni ungmenna í grunnskólum Akureyrar og nágrennis, verður haldin í fyrsta sinn þann 5. maí í Hofi en þá flytja nemendur frá 8 grunnskólum sitt atriði. Skipuleggjendur Fiðrings vonast til þess að keppnin verði á öllu Norðurlandi á næsta ári.

Fiðringur er að fyrirmynd Skrekks sem haldinn hefur verið í Reykjavík í 30 ár og Skjálftans á Suðurlandi sem leit fyrst ljós í fyrra. 

„Nú auglýsum við eftir tillögum að farandverðlaunagrip sem fer heim í skóla sigurliðsins hvert ár. Áhugasamir listamenn á öllum aldri eru hvattir til að senda inn tillögu með greinagóðri lýsingu á gripnum ásamt skissum eða mynd á fidringur.nordurlandi@gmail.com fyrir 8. apríl næstkomandi. Vinningstillagan hlýtur 100.000 krónur auk efniskostnaðar,“ segir í tilkynningu.

Fylgist með Fiðringi á Facebook og Instagram

Sambíó

UMMÆLI