Prenthaus

Hættu við tilboð í leigu á SigurhæðumMynd: Kaffid.is

Hættu við tilboð í leigu á Sigurhæðum

Stjórn Akureyrarstofu samþykkti í vetur að ganga til viðræðna við Hótel Akureyri um leigu á Sigurhæðum, húsið sem þjóðskáldið og presturinn Matthías Jochumsson lét reisa og hýsir nú minningarsafn um hann, en auglýst var eftir leigjendum í nóvember. Davíð Smárason, framkvæmdarstjóri Hótels Akureyrar, hefur nú fallið frá því tilboði vegna gjörbreyttra rekstraraðstæðna. Vikudagur greinir frá.

Fyrst um sinn stóð til að Akureyrarbær seldi Sigurhæðir en sú áætlun hlaut harða gagnrýna á meðal bæjarbúa. Helstu ástæður sölunnar voru þær að húsið hefur ekki nýst síðustu árin vegna lélegs aðgengis. Í kjölfarið hætti Akureyrarbær við sölu og bauð það frekar til leigu. Alls bárust þá fjögur tilboð.

Stjórn Akureyrarstofu hefur falið starfsmönnum að skoða með framhald málsins í ljósi stöðunnar sem nú er.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó