Prenthaus

Hafdís og Jónas eru hjólreiðafólk ársins hjá HFA

Hafdís og Jónas eru hjólreiðafólk ársins hjá HFA

Hjólreiðafólk ársins var valið á lokahófi Hjólreiðafélags Akureyrar, HFA, 29. október síðastliðinn. Þau Hafdís Sigurðardóttir og Jónas Stefánsson voru valin hjólreiðafólk ársins. Ungliðar ársins voru þau Sylvía Mörk Kristinsdóttir og Hlynur Snær Elmarsson.

Hafdís hefur átt frábært keppnistímabil í ár og er tvöfaldur Íslandsmeistari og bikarmeistari, í götuhjólreiðum og í tímatöku.

Jónas er metnaðarfullur fjallahjólari sem hefur síðastliðin ár einblínt á Enduro. Hann er bikarmeistari í A-flokk karla í Enduro með tveimur sigrum á tímabilinu. Þá lenti hann í þriðja sæti á Íslandsmótinu í fjallabruni.

Á vef HFA segir um Hafdísi:

Götuhjólatímabilið hjá Hafdísi hófst með þriggja daga keppnisferð til Danmerkur þar sem hún náði í mikilvæga reynslu fyrir komandi keppnir. Hafdís stóð uppi sem stigahæst í bikarmótaröð í A-flokk kvenna með tvo sigra og tvö silfur auk sigri á Íslandsmótinu. Hafdís sigraði einnig allar keppnir í tímatöku á tímabilinu, sem landaði henni sigri í bikarmótaröðinni og Íslandsmeistaratitli.

Þessi frábæri árangur leiddi til þess að Hafdís var valin til að fara fyrir hönd Íslands á EM í Þýskalandi í bæði götuhjólreiðum og í tímatöku. Þar lagði Hafdís sig alla fram og var með frábæran tíma í tímatökunni og hjólaði tæpa 90km í götuhjólunum í hrikalega erfiðari og hraðri keppni.

Mikilvægur undirbúningur fyrir EM var að keppa í Svíþjóð á Postnord U6 í júlí. Hafdís stóð sig frábærlega á því móti og endaði í fjórða sæti. Hafdís keppti einnig á Íslandsmótinu í criterium og lenti í öðru sæti. Þá keppti hún á Íslandsmótinu í cyclocross og lenti í þriðja sæti.

Það er greinilegt að Hafdís er ein fremsta hjólreiðakona Íslands, hún hefur verið á hraðri uppleið síðustu ár og stefnir enn hærra. Hafdís leggur sig alltaf alla fram og hefur mikinn metnað fyrir því sem hún gerir og sýndi í ár að hún er alls ekki bundin við eina grein. Hún er frábær íþróttakona og fyrirmynd sem hefur þjónað lykilhlutverki í því að fjölga keppendum á vegum HFA síðustu ár, og þá sérstaklega í kvennaflokknum.

Á Facebook-síðu HFA segir um Jónas:

Jónas vann sér inn keppnisrétt í Enduro World Series annað árið í röð og keppti þar í júní. Jónas keppti einnig í landsliði Íslands í Trophy of Nations í október en það er stórt skref fyrir greinina þar sem þetta var fyrsta skipti sem Ísland á þátttakendur á mótinu. Dýrmæt reynsla sem fékkst í þeirri keppni sem mun nýtast áfram til að byggja upp og þróa greinina.

Jónas er frábær fyrirmynd fyrir unga hjólara og hefur mikinn vilja til að ryðja brautina fyrir komandi kynslóðir og gegnir þar lykilhlutverki hjá HFA. Frumkvæði, gleði og metnaður lýsir Jónasi vel og er ljóst að hann á eftir að gera góða hluti í framtíðinni.

Nánar má lesa um lokahófið á vef HFA með því að smella hér.

UMMÆLI