Hagnaður Norðurorku 600 milljónir

Hagnaður Norðurorku 600 milljónir

Aðalfundur Norðurorku var haldinn í gær, föstudaginn 5. apríl í Menningarhúsinu Hofi. Farið var yfir reksturinn og ár fyrirtækisins sem skilaði talsverðum hagnaði. Rekstur Norðurorku gekk vel á árinu 2018 en ársvelta samstæðunnar var 3,8 milljarðar króna. Hagnaður ársins var 559 milljónir króna eftir skatta og eigið fé 12 milljarðar króna. Á aðalfundinum var í kjölfarið ákveðið að greiða hluthöfum 15% arð af hlutafé eða 127 milljónir króna. Eigendur Norðurorku eru sex sveitarfélög; Þingeyjarsveit, Grýtubakkahreppur, Svalbarðsstrandarhreppur, Eyjafjarðarsveit, Akureyrarbær og Hörgársveit.

Samstæðureikningur samanstendur af rekstri Norðurorku og dótturfélagsins Fallorku ehf. auk áhrifa frá hlutdeildarfélögunum Tengir hf. og Norak ehf. en rekstur þeirra allra gekk vel á árinu.

Farið var yfir árið á fundinum og þau fjölmörgu verkefni sem Norðurorka og dótturfélög tóku þátt í og kláruðu á árinu.

Á árinu lauk dótturfélagið Fallorka við byggingu nýrrar 3,3 MW virkjunar í Glerá sem gangsett var sumarið 2018. Þá lauk borun viðbótarholu á Arnarnesi sem og fyrsta hluta nýrrar Hjalteyrarlagnar. Framkvæmdir við byggingu hreinsistöðvar fráveitu við Sandgerðisbót eru í ferli og eru áætluð verklok sumarið 2020.

Á árinu var beislað kalt og heitt vatn úr Vaðlaheiðagöngum en hönnun á framhaldinu er ólokið þ.e. að nýta vatnið og tengja við Vatnsveitu Svalbarðstrandar og Akureyrar.

Verkefni næstu ára eru stór og fjárfrek, einkum í fráveitu og hitaveitu. Á árinu 2019 verður farið í annan áfanga Hjalteyrarlagnar frá Hjalteyri að Hörgárósi sem og lögn innan Akureyrar frá Glerárgötu upp Þórunnarstræti að Þingvallastræti. Áætlaður heildarkostnaður verkefnisins, þ.e. lagnir, borun og afleiðuverk er um 2,5 milljarðar.

„Þrátt fyrir að stór og mikil verkefni bíði í framtíðinni er það von okkar að verðskrár fyrirtækisins verði til lengri tíma litið með þeim hagstæðustu þegar horft er til fyrirtækja í sambærilegum rekstri. Sem samfélagi og einstaklingum er okkur ætíð hollt að muna að auðlindir okkar í heitu og köldu vatni eru ekki óþrjótandi. Mikið fjármagn þarf til að afla og vinna nýjar auðlindir og til uppbyggingar á kerfum til að auka flutningsgetu þeirra. Sóun á heitu vatni og neysluvatni eykur og hraðar fjárfestingaþörf í innviðum sem aftur kallar á hækkanir á verðskrá félagsins. Því er mikilvægt að halda til haga þeim tækifærum sem felast í því að fara vel með og forðast sóun á auðlindunum,“ segir í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.

Í stjórn Norðurorku voru kjörin Eva Hrund Einarsdóttir, Friðbjörg Jóhanna Sigurjónsdóttir, Geir Kristinn Aðalsteinsson, Hlynur Jóhannsson og Ingibjörg Ólöf Isaksen. Í varastjórn voru kjörin, Gunnfríður Hreiðarsdóttir, Hannes Karlsson, Hilda Jana Gísladóttir, Víðir Benediktsson og Þórhallur Jónsson.

Hægt er að lesa nánar um aðalfundinn og nálgast ársskýrsluna í heild sinni með því að ýta hér.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó