Hallgrímur Mar framlengir við KALjósmynd/KA

Hallgrímur Mar framlengir við KA

Knattspyrnu deild KA hefur tilkynnt að Hallgrímur Mar Steingrímsson hefur skrifað undir nýjan samning og er nú samningsbundinn félaginu út sumarið 2027.

Hallgrímur er leikjahæsti leikmaður í sögu félagins með 378 leiki í deild, bikar, Evrópu og meistarakeppni KSÍ. Hann er einnig markahæsti leikmaður í sögu félagsins með 125 mörk. Þá er hann leikjahæsti leikmaður KA í efstu deild með 209 leiki auk þess að vera markahæsti leikmaður KA í efstu deild með 75 mörk. Sömuleiðis er hann markahæsti leikmaður KA í Evrópu en hann hefur nú gert 4 mörk í 8 Evrópuleikjum og enginn leikið fleiri Evrópuleiki fyrir KA.

Grímsi átti frábært tímabil á síðasta ári og var hann meðal annars kjörinn íþróttamaður KA fyrir árið 2025 og nú á dögunum var hann í fyrsta skiptið valinn í A-landslið Íslands sem mætir Mexíkó í vináttuleik í lok mánaðarins.

„Grímsi sem er 35 ára gamall hefur sýnt það og sannað á undanförnum árum að hann á nóg eftir og ef eitthvað er þá hefur hann haldið áfram að bæta í með hverju árinu. Hann hefur verið einn besti leikmaður Bestudeildarinnar undanfarin ár og verður virkilega gaman að sjá hann loksins fá tækifærið með landsliðinu í Mexíkó. Það eru gríðarlega jákvæðar fréttir að Grímsi sé búinn að skrifa undir nýjan samning við KA og ljóst að hann mun halda áfram að endurskrifa sögu félagsins,“ segir á vef KA.

COMMENTS