Prenthaus

Handtekin vegna fíkniefnaframleiðslu á Akureyri

Handtekin vegna fíkniefnaframleiðslu á Akureyri

Fjórir einstaklingar voru handteknir á mánudaginn vegna fíkniefnaframleiðslu í fjölbýlishúsi á Akureyri. Lögregla lagði hald á 14 kannabisplöntur. Þetta kemur fram á vef RÚV í dag.

Þar segir að þrír karlmenn og ein kona á fertugsaldri hafi verið handtekin og flutt á lögreglustöð. Þar eru þau vistuð þar til unnt er að yfirheyra þau.

Samkvæmt upplýsingum frá Bergi Jónssyni aðstoðaryfirlögregluþjónni hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra  telst málið upplýst. 

UMMÆLI

Sambíó