Helena, Helgi Freyr og Sigríður skrifuðu kafla í nýútgefinni bók um gervigreind

Helena, Helgi Freyr og Sigríður skrifuðu kafla í nýútgefinni bók um gervigreind

Fyrir áramót kom út bókin Generative Artificial Intelligence in Higher Education á vegum Libri Publishing Ltd. Bókin fjallar um skapandi gervigreind í háskólasamfélaginu. Bókinni er ætlað að styðja starfsfólk háskóla við innleiðingu gervigreindar á ýmsum sviðum. Töluverðar umræður hafa átt sér stað í samfélaginu um notkun gervigreindar, ýmsar siðferðilegar áskoranir og heiðarleika í vinnu, námi, rannsóknum og kennslu. Með tilkomu nýrrar tækni er mikilvægt að skoða hvaða hlutverk og hvaða möguleika notkun gervigreindar getur fært okkur.

Einn kafli bókarinnar er skrifaður af starfsfólki Háskólans á Akureyri, þeim Helenu Sigurðardóttur, kennsluráðgjafa og Helga Frey Hafþórssyni, verkefnastjóra margmiðlunar, sem bæði starfa við Kennslu- og upplýsingatæknimiðstöð ásamt Sigríði Halldórsdóttur, emirita. Kaflinn þeirra fjallar um meginkosti og takmarkanir notkunar gervigreindar í háskólasamfélaginu, bæði fyrir háskólanema og háskólakennara. Höfundar hönnuðu líkan sem miðar að því að innleiða notkun gervigreindar á ábyrgan og skilvirkan hátt í háskólasamfélaginu. Markmiðið með þróun líkansins var að brúa bilið milli fræðilegs skilnings á gervigreind, hagnýtrar notkunar og stuðla að þróun stafrænnar og siðferðislegrar hæfni í notkun gervigreindar.

Bókinni ritstýra Kayoko Enomoto, dósent og Richard Warner, stundakennari, sem báðir starfa við Háskólann í Adelaide ásamt Claus Nygaard, prófessor og framkvæmdastjóra Institute for Learning in Higher Education (LiHE).

Upplýsingar um bókina má finna hér og bókina sjálfa má finna á bókasafni skólans. Þá er hægt að finna tvö erindi sem Helgi og Helena héldu á ráðstefnu Kennsluakademíunnar í tengslum við efnivið bókarinnar, hér og hér.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó