Hermann Karlsson ráðinn í nýja stöðu Almannavarna og Lögreglunnar á Norðurlandi eystra

Hermann Karlsson ráðinn í nýja stöðu Almannavarna og Lögreglunnar á Norðurlandi eystra

Hermann Karlsson, aðalvarðstjóri hjá Lögreglustjóranum á Norðurlandi eystra, hefur verið ráðinn í nýja stöðu Almannavarna og Lögreglunnar á Norðurlandi eystra. Hann mun vera í 50 prósent starfshlutfalli hjá hvorum aðila og mun hafa starfsaðstöðu á Akureyri. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

„Á síðustu misserum hafa verkefni tengd almannavörnum verið vaxandi þáttur í starfsemi lögreglunnar á Norðurlandi eystra og eins og allir þekkja þá hafa t.d. óveður, jarðhræringar og Covid verið mikið í umræðunni svo eitthvað sé nefnt í þessum málaflokki. Nú hafa embætti Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra og Almannavarnardeild Ríkislögreglustjóra tekið höndum saman um að efla sína starfsemi hvað þetta varðar og ráðið starfsmann sem er í 50% starfshlutfalli hjá hvorum aðila og mun hann hafa starfsaðstöðu á Akureyri. Verkefnið er tímabundið í fyrstu og er til næstu áramóta,“ segir í tilkynningunni.

Hermann hefur starfað í lögreglunni í um 30 ár og frá árinu 2004 hefur hann verið aðalvarðstjóri á Akureyri og sinnt verkefnum almannavarna í ríkum mæli. Hermann mun sinna verkefnum sem tengjast almannavörnum í fullu starfi þennan tíma.

„Hermann hefur komið mikið að þessum málaflokki undanfarin ár hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra og starfað í aðgerðastjórn þegar hún er virkjuð. Þá hefur hann komið að gerð viðbragðsáætlana og æfinga og átt í miklum samskiptum við aðra viðbragðsaðila á starfssvæðinu. Helstu hlutverk sem hann mun sinna, auk þeirra sem greint er frá hér að ofan, er meðal annars að efla aðgerðastjórnir á landsvísu samkvæmt nýútkominni stefnu stjórnvalda í almannavarna- og öryggismálum. Þá mun hann koma að vinnu við yfirferð á viðbragðsáætlun hvað óveður varðar á landsvísu og skoða með hvaða hætti hægt sé að auðvelda viðbragðsaðilum að nálgast upplýsingar úr viðbragðsáætlunum á ögurstundu,“ segir í tilkynningu lögreglunnar.

UMMÆLI