Hraðahindranir settar upp vegna Bíladaga

Hraðahindranir settar upp vegna Bíladaga

Bíladagar fara fram á Akureyri um helgina og því hafa verið settar upp hraðahindranir víða í bænum líkt og undanfarin ár.

Á Instagram síðu Akureyrarbæjar má sjá starfsmenn framkvæmdamiðstöðvar Akureyrarbæjar í óða önn að setja upp hraðahindranir víðsvegar um bæinn vegna Bíladaga sem hefjast á föstudaginn.

Hraðahindranir eru meðal annars settar upp í Gilinu eins og má sjá á myndinni. Dagskrá Bíladaga má finna á heimasíðu Bílaklúbbs Akureyrar, www.ba.is/biladagar-2019.

https://www.instagram.com/p/BynMLygA5Z8/?utm_source=ig_web_copy_link
Sambíó

UMMÆLI