Hrafnhildur Karlsdóttir ráðin sölu- og rekstrarstjóri Kristjánsbakarís

Hrafnhildur Karlsdóttir ráðin sölu- og rekstrarstjóri Kristjánsbakarís

Hrafnhildur E. Karlsdóttir hefur verið ráðin sölu- og rekstrarstjóri Kristjánsbakarís. Ráðning hennar er liður í endurskipulagningu fyrirtækisins, en stjórnendur fyrirtæksins hafa verið að hagræða og endurskipuleggja reksturinn eftir tekjufall sem skapaðist meðal annars af kórónuveirufaraldrinum.

Endurskipulagningin felur í sér að styrkja stoðirnar svo hægt sé að tryggja framtíð fyrirtækisins á Akureyri. Megin áhersla er lögð á framleiðslu og þjónustu við viðskiptavini fyrirtækisins á Norðurlandi.

Kristjánbakarí var stofnað árið 1912 og er eitt elsta iðnfyrirtæki landsins og er vilji til þess að sjá það í sögubókum framtíðarinnar.

„Það er gríðarlegur styrkleiki fyrir okkur að hafa svona öfluga manneskju með okkur í brúnni,“ segir Vilhjálmur Þorláksson, framkvæmdastjóri Gæðabaksturs.

Hrafnhildur hefur víðtæka stjórnunarreynslu en nú síðast starfaði hún sem Hótelstjóri á Hótel Kea á Akureyri. Kristjánsbakarí er hluti af Gæðabakstri Ömmubakstri og telur fyrirtækið í dag um 150 starfsmenn.

Sambíó

UMMÆLI