Prenthaus

Hundur í óskilum snýr aftur í Samkomuhúsið í haust

Hundur í óskilum snýr aftur í Samkomuhúsið í haust

Eftir að hafa farið á hundavaði um sögu íslensku þjóðarinnar í þremur brakandi skemmtilegum sýningum – Sögu þjóðar, Öldinni okkar og Kvenfólki – snýr hinn óviðjafnanlegi dúett Hundur í óskilum aftur í Samkomuhúsið og ræðst á einn af hornsteinum íslenskrar menningar – sjálfa Njálu.

Drepfyndin sýning þar sem þeir Hjörleifur Hjartarson og Eiríkur Stephensen hlaupa meira en hæð sína í öllum herklæðum í gegnum skrautlegt persónugallerí Njálu. Við sögu koma taðskegglingar, hornkerlingar, kinnhestar, kartneglur og þjófsaugu svo fátt eitt sé nefnt.

Frumsýning verður 22. september næstkomandi en miðasala er þegar hafin á mak.is.

Leikarar: Eiríkur Stephensen og Hjörleifur Hjartarson

Höfundur: Hjörleifur Hjartarson
Leikstjórn: Ágústa Skúladóttir
Tónlist: Eiríkur Stephensen og Hjörleifur Hjartarson
Leikmynd og búningar: Þórunn María Jónsdóttir
Lýsing: Ingi Bekk
Hljóð: Þorbjörn Steingrímsson
Leikgervi: Elín S. Gísladóttir og Þórunn María Jónsdóttir.

MIÐASALA Á MAK.IS

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó