Hver sendi Bruun póstkortið frá Akureyri?

Hver sendi Bruun póstkortið frá Akureyri?

„Segja má að Daniel Bruun hafi verið einn af brautryðjendum í rannsóknum menningarminja á Íslandi. Þessi afkastamikli áhugamaður vann Íslandi ómetanlegt gagn.“

Svo skrifar Þór Magnússon í formála bókarinnar Íslenskt þjóðlíf í þúsund ár sem Bókaútgáfan Örn og Örlygur gaf út árið 1987.

Daniel Bruun (1856-1931) var liðsforingi í danska hernum og fornleifafræðingur. Hann kom margoft til Íslands um aldamótin 1900 til að rannsaka kuml. Hann tileinkaði sér vísindaleg vinnubrögð við rannsóknir sínar, gerði kort af kumlstöðunum, teiknaði þau upp til að sýna afstöðu beina og gripa og lét kyn- og aldursgreina mannabein sem fundust í kumlunum. Slík vinnubrögð voru ekki sjálfgefin á þessum tíma.

Daniel Bruun var afkastamikill þegar kom að rannsóknum á Íslandi. Sennilega hefur enginn safnað jafn miklum upplýsingum um íslenska þjóðmenningu og hann gerði á árunum 1896-1910. Hann dvaldist lengi á Dalvík við rannsóknir sem og á Gásum. Mikið ef rannsóknargögnum liggur eftir Daniel Bruun í Þjóðminjasafninu í Kaupmannahöfn, teikningar og ljósmyndir.

Margar af ljósmyndum þeim sem Daniel Bruun tók á Íslandi eru fyrir löngu orðnar sígildar, myndir sem hvert mannsbarn þekkir. Ein úr þeim hópi er myndin af Svanfríði Jónasdóttur, mjaltastúlku sem lengi var vinnukona á hinum ýmsu bæjum í Bárðardal. Myndina tók Bruun að bænum Lundarbrekku árið 1897 (sjá grenndargral.is).

Daniel Bruun kom í nokkrar heimsóknir til Akureyrar á meðan rannsóknum hans stóð, þá fyrstu árið 1896. Í áðurnefndu Þjóðminjasafni Dana er til póstkort sem sent var til Bruun í Danmörku, frá Akureyri. Kortið er dagsett 18. júlí 1912 og stimplað þremur dögum síðar.

Grenndargralið spyr hvað var skrifað á kortið og hver skrifaði textann?

Heimild: Grenndargralið

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó