beint flug til Færeyja

Hver verður ungskáld Akureyrar 2024?

Hver verður ungskáld Akureyrar 2024?

Dómnefnd mun kunngera úrslit í ritlistasamkeppni Ungskálda 2024 við hátíðlega athöfn í Amtsbókasafninu á Akureyri. Athöfnin fer fram á degi íslenskrar tungu, laugardaginn 16. nóvember kl. 14.

Léttar veitingar verða í boði að athöfn lokinni og einnig verður tónlistarflutningur frá Elíasi Dýrfjörð sem leikur á kontrabassa. Öll velkomin á athöfnina.

NTC

Ungskáld er verkefni á Akureyri sem gengur út á að efla ritlist og skapandi hugsun hjá ungu fólki á aldrinum 16-25 ára.

Verkefnið hófst árið 2013 og er það eina sinnar tegundar á landinu. Staðið er fyrir ritlistakeppni þar sem veitt eru peningaverðlaun fyrir efstu þrjú sætin. Engar hömlur eru settar á texta, hvorki varðandi efnistök né lengd. Þeir þurfa þó að vera á íslensku og eigið frumsamið hugverk.

Til þess að styðja við áhugasama um að skila inn texta/textum er boðið upp á námskeið í skapandi skrifum og skapandi hugsun, þar sem leiðbeinendur koma úr ólíkum áttum. Sem dæmi var síðustu ár leitað til Ævars Þórs Benediktssonar, Vigdísar Hafliða, Yrsu Sigurðardóttur, Svavar Knúts og Gunnar Helgason.

Einnig hefur kaffihúsakvöld Ungskálda slegið í gegn en þar er gestum boðið upp á veitingar, upplestur og tónlistaratriði. Tilvalinn vettvangur til að mynda tengsl í gegnum ritlistina.

NTC

Í nefnd Ungskálda eru fulltrúar frá Atvinnu-, markaðs- og menningarteymi Akureyrarbæjar, Verkmenntaskólanum á Akureyri, Menntaskólanum á Akureyri, Ungmennahúsinu í Rósenborg og Amtbókasafninu.

VG

UMMÆLI