Iðnaðarsafnið á Akureyri verður opið áfram

Iðnaðarsafnið á Akureyri verður opið áfram

Nú er orðið ljóst að Iðnaðarsafninu á Akureyri verður ekki lokað nú 1. mars eins og allt stefndi í á dögunum. Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook-síðu safnsins í dag.

Þar segir að Akureyrarbær hafi ákveðið að koma með fjármagn til þess að safnið verði áfram opið, allar götur fram á haustið. Á morgun mun taka í gildi nýr opnunartími á safninu.

Safnið verður opið alla daga vikunnar frá og með 1. mars 2023 frá klukkan 13.00 til klukkan 16.00, líka um helgar. Í vor mun sumaropnum safnsins taka gildi en hún verður auglýst síðar.

Áfram verður unnið að framgangi safnastefnu Akureyrar 2022-2026 sem gerir ráð fyrir viðræðum stjórna Iðnaðarsafnsins og Minjasafnsins um aukna samvinnu eða samruna safnanna. Akureyrarbær hefur skipað Þórgný Dýrfjörð fulltrúa sinn til að stýra þessum væntanlegu viðræðum safnanna.

„Þessi niðurstaða er okkur mikið fagnaðarefni og viljum við koma þökkum okkar beint á framfæri við bæjaryfirvöld og einnig allra þeirra sem við vitum að hafa sent okkur stuðning og góðan hug í símtölum, heimsóknum og fallegum kveðjum. Ennfremur ætlum við að setja strax í gang undirbúning að sýningum sumarsins og þess má geta að við munum koma að hátíðarhöldum sjómannadagsins eins og á síðasta ári. Í dag er ástæða til að gleðjast, þakka og ganga bjartsýnn til nýrra tíma. Hollvinir Iðnaðarsafnisns munu bjóða í hollvinakaffi á föstudaginn 3. mars. kl 10.00. Allir velunnarar Iðnaðarsafnsins eru hjartanlega velkomnir,“ segir í tilkynningu Iðnaðarsafnsins.

UMMÆLI