Indian Curry Hut stækkar við sig og breytir um nafn

Indverski veitingastaðurinn Indian Curry Hut á Akureyri mun í desember opna á nýjum og stærri stað. Staðurinn hefur hingað til verið í gula kofanum í göngugötunni.

Ásamt því að stækka við sig mun staðurinn breyta um nafn. Þar sem flutt verður úr kofanum í stærra húsnæði mun staðurinn nú heita Indian Curry House eða Indverska karrý húsið.

Framkvæmdir við nýja staðinn eru hafnar og verður hægt að fylgjast með þeim á Facebook síðu staðarins.

UMMÆLI