Jafnréttisráð HA veitti sex viðurkenningarLjósmynd/Jóndís Inga Hinriksdóttir

Jafnréttisráð HA veitti sex viðurkenningar

Jafnréttisráð Háskólans á Akureyri veitti á dögunum sex viðurkenningar fyrir framúrskarandi framlag til jafnréttis, inngildingar og fjölbreytileika í samræmi við stefnu skólans. Viðurkenningarnar eru veittar félagasamtökum og einstaklingum úr háskólasamfélaginu sem hafa unnið að því að efla réttindi og sýnileika ólíkra hópa.

Eftirtaldir hlutu viðurkenningu árið 2026:

  • Berglind Hólm Ragnarsdóttir, lektor, fyrir rannsóknir og mótun nýrrar jafnréttisáætlunar HA.
  • Ergi – Félag Hinsegin Stúdenta á Norðurlandi, fyrir að skapa öruggt rými og auka sýnileika hinseginleika innan háskólans.
  • Hrafnhildur Eggerz Haraldsdóttir, hjúkrunarfræðistúdent, fyrir framlag til fræðslu um kynvitund.
  • Margrét Unnur Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðistúdent, fyrir vinnu við námskeið og ráðstefnur um jafnréttismál.
  • Jóhannes Már Pétursson, formaður Alþjóðanefndar SHA, fyrir stuðning og hagsmunagæslu fyrir stúdenta af erlendum uppruna.
  • Sara Stefánsdóttir, lektor, fyrir að þróa grunndiplómanám fyrir fólk með fjölþættar stuðningsþarfir.

COMMENTS