Jóhann K. Jóhannsson nýr slökkviliðsstjóri Fjallabyggðarmynd: Facebook.com

Jóhann K. Jóhannsson nýr slökkviliðsstjóri Fjallabyggðar

Jóhann K. Jóhannsson, fyrrverandi fréttamaður, hefur verið ráðinn slökkviliðsstjóri Fjallabyggðar.

Jóhann starfaði sem slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður frá árinu 2005-2013. Hann öðlaðist löggildingu sem sjúkraflutningamaður árið 2003 og tók EMT-I 2009. Þá öðlaðist hann löggildingu sem slökkviliðsmaður árið 2010. Lengst af starfaði hann hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands og hjá Brunavörnum Árnessýslu. Jóhann var um tíma slökkviliðsstjóri Brunavarna Austur-Húnvetninga. 

Jóhann breyti um starfsvettvang og fór í fjölmiðla árið 2013 og hefur starfað sem fréttamaður á Stöð 2, Vísi og Bylgjunni frá 2016. Á síðasta ári fékk hann leyfi frá störfum til þess að annast upplýsingamiðlun fyrir almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og er því verkefni nýlokið. 

Jóhann er giftur Arnhildi Evu Steinþórsdóttur og eiga þau fjögur börn á aldrinum 2ja-20 ára.

Frétt Fjallabyggð.is

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó