KIA

Jóhann Már Leifsson valinn Íshokkímaður ársins

Jóhann Már Leifsson.

Jóhann Már Leifsson hefur verið valinn íshokkímaður ársins 2018 af stjórn Íshokkísambands Íslands.

Jóhann Már hefur um árabil leikið með meistaraflokki Skautafélags Akureyrar með frábærum árangri og margsinnis hampað Íslands- og deildar- og bikarmeistaratitli.  Jóhann er fæddur árið 1993 og hóf að leika íshokkí 3 ára gamall. Jóhann spilaði fyrsta meistaraflokks leik sinn 14 ára gamall og var orðinn fastamaður  í liði Víkinga 15 ára gamall. Hann spilaði erlendis tímabilið 2011-2012 með Niagara Fury í CJHL deildinni í Kanada. Jóhann hefur einnig leikið með öllum landsliðum Íslands en hlutverk hans með landsliðinu hefur vaxið jafnt og þétt og er hann nú lykilmaður í liðinu.

,,Jóhann Már er þekktur fyrir baráttu sína og vinnusemi inn á ísnum ásamt því að vera góður liðsfélagi og ávallt tilbúinn til að taka þátt í landsliðsverkefnum og er til fyrirmyndar í alla staði. Íshokkísamband Íslands óskar Jóhanni Má innilega til hamingju með árangurinn,“ segir í tilkynningunni frá Íshokkísambandi Íslands.

UMMÆLI

Sambíó