Jólaljós og lopasokkar í Hofi fyrir jólin

Jólaljós og lopasokkar í Hofi fyrir jólin

Jólatónleikarnir Jólaljós og lopasokkar verða haldnir þann 1. desember næstkomandi í menningarhúsinu Hofi. Þessir jólatónleikar eru búnir að festa sér sess í jólahefð margra og í ár verða tónleikarnir haldnir í þriðja skipti.

Á tónleikunum koma fram vel kunnugir söngvarar; Króli, Óskar Pétursson, Guðrún Gunnarsdóttir og Jónína Björt Gunnarsdóttir. Ásamt þeim mun sönghópurinn Rok, frábær hljómsveit og dansarar frá DSA, Listdansskóla Akureyrar, sjá til þess að allir áhorfendur munu skemmta sér vel og fara heim í algjöru jólaskapi. 

Kynnir er hin skemmtilega norðlenska leikkona Kolbrún Lilja Gunnarsdóttir.

„Ég er svo spennt að taka þátt í þessum skemmtilegu og fjölskylduvænu jólatónleikum með þessu frábæra listafólki,“ segir Guðrún Gunnarsdóttir en þetta er í fyrsta skipti sem hún tekur þátt í Jólaljósum og lopasokkum en þó ekki í fyrsta skipti sem hún syngur með Óskari Péturssyni, en þau hafa sungið á ófáum tónleikum saman. 

Þetta er fullkomin skemmtun fyrir saumaklúbbinn, starfsmannahópinn eða sem fyrsti liður í samverudagatali hjá fjölskyldum í desember. 

Miðasala er hér https://www.mak.is/is/vidburdir/jolaljos-og-lopasokkar-2

Jólatónleikarnir eru haldnir á vegum norðlenska framleiðslufyrirtækisins Rún Viðburða sem hefur haldið fjölbreytta og vinsæla tónleika á Akureyri í gegnum árin.

VG

UMMÆLI

Sambíó