beint flug til Færeyja

Jólamarkaður í Skógarlundi

Jólamarkaður í Skógarlundi

Undirbúningur fyrir árlega jólamarkað í Skógarlundi er í fullum gangi og starfsfólk og leiðbenendur þar eru komin í sannkallað jólaskap. Jólamarkaðurinn verður haldinn 5. og 6. desember næstkomandi.

Fimmtudaginn 5. desember klukkan 12:00 til 17:00 og föstudaginn 6. desember klukkan 12:00 til 18:00 verður úrval af fallegum jólavörum til sölu, handgerðum úr leir og tré, auk annarra hluta sem starfsfólk Skógarlundar hefur unnið að á árinu. Gestum verður boðið upp á kaffi og konfekt og posi verður á staðnum.

Framsókn

Í Skógarlundi er boðið upp á atvinnu – og hæfingatenga þjónustu fyrir einstaklinga með langvarandi stuðningsþarfir. Markmiðið er að efla þátttöku í daglegu lífi og bæta lífsgæði þeirra sem nýta sér þjónustuna.

Ef einhverjir komast ekki á markaðinn en vilja skoða vörurnar, þá er verslun Skógarlundar opin alla virka daga klukkan 08:00 til 15:30.

Á vef Akureyrarbæjar má finna myndir frá jólaföndri í Skógarlundi

VG

UMMÆLI