Prenthaus

KA fá miðjumann frá Belgíu

KA fá miðjumann frá Belgíu

Knattspyrnudeild KA samdi í dag við Belgann Sebastiaan Brebels. Sebastiaan er 26 ára miðjumaður sem kemur til liðs karlalið KA í knattspyrnu frá liðinu Lommel í Belgíu.

Í tilkynnigu frá KA segir að Sebastiaan hafi staðið sig vel og leikið alla leikina fyrir Lommel á núverandi keppnistímabili þar sem hann hefur skorað 3 mörk í 14 leikjum en samtals hefur Sebastiaan leikið 105 leiki fyrir Lommel og skorað í þeim 9 mörk.

„KA hefur náð samkomulagi við Lommel og er Sebastiaan væntanlegur til landsins á næstu dögum. Það verður gaman að sjá þennan öfluga leikmann í KA-búningnum á komandi tímabili og bjóðum við hann velkominn norður,“ segir í tilkynnigu KA.

UMMÆLI