KA menn komu færandi hendi á barnadeild Sjúkrahússins á Akureyri

KA menn komu færandi hendi á barnadeild Sjúkrahússins á Akureyri

Leikmenn meistaraflokks KA í knattspyrnu gerðu heldur betur góðverk fyrir jól en leikmenn liðsins komu færandi hendi á barnadeild Sjúkrahússins á Akureyri og höfðu safnað saman fjórum ísskápum, örbylgjuofn, spjaldtölvu sem og hina ýmsu drykki til að fylla á kælana. Frá þessu er greint á vef KA.

„Það voru þeir Andri Fannar Stefánsson og Ásgeir Sigurgeirsson sem mættu upp á barnadeildina með gjafirnar góðu sem munu án efa nýtast ansi vel en eins og við þekkjum flest er ekki spurt um jólafrí eða önnur frí þegar kemur að starfi á sjúkrahúsinu og erum við ansi stolt af þessu flotta framtaki strákanna okkar,“ segir á vef KA.

UMMÆLI