KA slítur sam­starfinu við Þór


For­ráðamenn KA til­kynntu koll­eg­um sín­um hjá Þór það í gær­kvöld að ákveðið hefði verið að slíta sam­starfi fé­lag­anna í meist­ara­flokki karla í hand­bolta. Frá þessu er greint í Morg­un­blaðinu í morgun.

Fé­lög­in hafa frá ár­inu 2006 teflt sam­an fram liði und­ir merkj­um Ak­ur­eyr­ar Hand­bolta­fé­lags en nú er ljóst að KA verður með lið í 1. deild á næstu leiktíð. Óljóst er hvort þar verður einnig lið með nafni Þórs eða Ak­ur­eyr­ar Hand­bolta­fé­lags, en vilji Þórsara var til þess að halda sam­starf­inu áfram.

Sjá einnig

Óvíst hvort Akureyri Handboltafélag tefli fram liði næsta vetur

UMMÆLI

Sambíó