KA/Þór styrkti stöðu sína á toppi Grill 66 deildarinnar í handbolta með útisigri á Val 2 í gær, þetta kom fram á vef Þórs en þar segir einnig:
„Leikurinn var nokkuð jafn og spennandi lengstum en þegar á leið sýndu okkar konur mátt sinn og megin og unnu að lokum tveggja marka sigur, 25-27.“
Hér er hægt að skoða tölfræðina úr leiknum.
Næsti leikur KA/Þór er útileikur gegn HK 1. febrúar.
UMMÆLI