Krakkar í Síðuskóla senda börnum í Úkraínu jólagjafir

Nemendur leggja mikinn metnað í verkefnið og hafa gaman að. Mynd: akureyri.is

Jól í skókassa er alþjóðlegt verkefni sem miðar að því að fá börn og fullorðna til að gleðja börn sem lifa við mikla fátækt, sjúkdóma og erfiðleika í Úkraínu með því að gefa þeim jólagafir í skreyttum skókössum.
Frá því árið 2013 hefur Síðuskóli verið með í verkefninu en það voru umsjónarkennarar í 7. bekk sem ákváðu fyrst að taka þátt í verkefninu og hafa haldið utan um það síðan.

Nemendur í 7. bekk í Síðuskóla unnu því hörðum höndum í gær við að pakka alls konar nytsamlegum hlutum og leikföngum í skókassa sem þau skreyttu sjálf.

Síðuskóli hefur verið Grænfánaskóli frá því árið 2006 og fellur þetta verkefni vel að umhverfisstefnu skólans þar sem safnað er saman gjöfum í kassana frá nemendum og starfsfólki. Lögð er áhersla á að endunýta og finna það sem er nothæft, setja í kassana og gefa hlutunum nýtt hlutverk á nýjum slóðum. Nemendur sýna þessu verkefni áhuga, hluttekningu og finnst þetta skemmtilegt. Í byrjun nóvember fer hópurinn saman með gjafirnar í starfsstöð KFUM og KFUK.

Sambíó

UMMÆLI