Prenthaus

Krefjandi aðstæður til snjómokstursMynd: Akureyri.is

Krefjandi aðstæður til snjómoksturs

Aðstæður til snjómoksturs á Akureyri hafa verið krefjandi í vikunni. Snjóað hefur býsna mikið á sama tíma og hitastig hefur rokkað, hlýnað yfir daginn og myndast slabb á götum og stígum. Á vef Akureyrbæjar eru íbúar bæjarins beðnir um að sýna þolinmæði.

„Ekki er gott að láta snjómoksturstæki vinna á frost- og klakalausu malbiki því hætt er við skemmdum, t.d. á vélum og kantsteinum. Þar af leiðandi hefur þótt nauðsynlegt að takmarka moksturinn að mestu við stofnbrautir, stofnstíga og tengibrautir. Í dag er ástand í íbúðagötum hins vegar víða orðið erfitt og þar sem von er á frosti næstu daga er settur aukinn kraftur í snjómoksturinn,“ segir á vef bæjarins.

Markmiðið er að hreinsa sem allra mest af illfærum íbúðagötum og stígakerfinu áður en frystir aftur til að koma í veg fyrir að slabbið verði að klaka og ís.

„Engum finnst gaman að sitja fastur í illfærri götu eða vaða slabb upp að hnjám, en allir eru að gera sitt besta og munum að vorið er á næsta leyti.“

Sambíó

UMMÆLI