KIA

Krefur heilbrigðisráðherra um svör vegna SÁÁ og meðferðarúrræða utan höfuðborgarsvæðisins

Krefur heilbrigðisráðherra um svör vegna SÁÁ og meðferðarúrræða utan höfuðborgarsvæðisins

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, þingkona Samfylkingarinnar úr Norðausturkjördæmi hefur lagt fram fyrirspurn til Svandísar Svavarsdóttur, heilbrigðisráðherra, um fjármögnun þjónustu SÁÁ og meðferðarúrræði utan höfuðborgarsvæðisins.

Bæjarstjórn Akureyrar lýsti á dögunum yfir óánægju með þau áform SÁÁ að loka göngudeild sinni á Akureyri næstu áramót. Lítið hefur gengið í viðræðum Akureyrarbæjar við ríkið og SÁÁ um að tryggja starfsemina áfram á Akureyri.

Sjá einnig: Fordæma áform SÁÁ: „Þetta er með öllu óþolandi”

Albertína vill fá svör við eftirfarandi spurningum:

1. Hver er staða fjármögnunar göngudeildarþjónustu SÁÁ á Akureyri? 
2. Hvaða önnur meðferðarúrræði eru í boði utan höfuðborgarsvæðisins fyrir þá sem glíma við áfengis- og vímuefnavandamál? 
3. Hvaða almennu geðheilbrigðisúrræði eru í boði utan höfuðborgarsvæðisins fyrir þá sem glíma við geðræn vandamál eða tvíþættan vanda?
4. Telur ráðherra gagnlegt með tilliti til jafnræðis að skilyrt verði í fjárlögum hvers árs sérstök fjármögnun meðferðarúrræða utan höfuðborgarsvæðisins?

Hilda Jana Gísladóttir, oddviti Samfylkingarinnar á Akureyri, segist vera ánægð með fyrirspurnina á Facebook síðu sinni í dag. Hún hlakkar til að fá svör við þessum spurningum en Hilda hefur áður sagt að það sé algjörlega óásættanlegt að göngudeild SÁÁ á Akureyri verði lokað um áramótin.

„Ég hef kafað af miklum eldmóði ofaní þetta mál og verð ég að segja eftir þá vegferð að það sem hefur komið mér lang mest á óvart er viljaleysi bæði SÁÁ og Velferðaráðuneytisins til þess að leita lausna. Báðir aðilar virðast langþreyttir og hundleiðir á hvor öðrum og ég tel engar líkur á því að málið leysist þeirra á milli.”

UMMÆLI