Kristína Björk Arnórsdóttir hefur verið ráðin persónuverndarfulltrúi HSN og SAk. Er þessi staða fyrsta sameiginlega staða HSN og SAk í þessum málaflokki. Kristína býr á Akureyri ásamt eiginmanni sínum og fjórum börnum og hefur mikinn áhuga á heilbrigðisrétti, persónuvernd, öryggismenningu og hvernig megi stuðla að auknu öryggi sjúklinga með að tryggja réttaröryggi heilbrigðisstarfsmanna.
Á vef SAk og HSN kemur fram að Kristína er með BA og meistarapróf í lögfræði frá Háskólanum á Akureyri og skrifaði hún bæði BA og meistaraverkefnið sitt á sviði heilbrigðisréttar. Kristína hefur starfað sem lögfræðingur á lögmannsstofu þar sem hún hefur áunnið sér inn víðtæka reynslu á ýmsum réttarsviðum. Kristína hefur einnig starfað sem lögfræðingur á rektorsskrifstofu Háskólans á Akureyri þar sem hún sinnti einnig starfi persónuverndarfulltrúa. Þá hefur Kristína kennt persónuverndarrétt á meistarastigi í Háskólanum á Akureyri og verið með persónuverndarfræðslu og erindi fyrir aðrar stofnanir.
„Ég er þakklát fyrir það traust sem mér hefur verið sýnt að fá að taka við starfi persónuverndarfulltrúa hjá tveimur stærstu og mikilvægustu stofnunum á Norðurlandi og að fá tækifæri á að vera þátttakandi í því flotta samstarfsverkefni sem HSN og SAk standa fyrir. Persónuvernd er mikilvægur þáttur í heilbrigðisþjónustu þar sem unnið er með umfangsmiklar viðkvæmar persónuupplýsingar daglega. Mín meginverkefni verða að tryggja að stofnanirnar uppfylli allar kröfur persónuverndarlöggjafarinnar, sinna fræðslu, o.fl. Starfið felur í sér spennandi og krefjandi áskoranir sem ég hlakka til að takast á við og ekki síður að vera partur af þessum flottu teymum,“ segir Kristína í tilkynningunni og þar kemur einnig fram lífsmottó hennar: „Ég skrifa ekki lyfseðla en ég les smáa letrið sem þeim fylgir.“
UMMÆLI