beint flug til Færeyja

Kvikmynd um Kröflu sigraði á Landkönnunarhátíð á Húsavík

Kvikmynd um Kröflu sigraði á Landkönnunarhátíð á Húsavík

Kvikmyndaverðlaun Landkönnunarhátíðar voru veitt á Húsavík í gærkvöldi. Verðlaun fyrir bestu myndina hlaut „Krafla – Umbrot og Uppbygging“ eftir Stefaníu Eir Vignisdóttur og Gasa Kenny, en mynd þeirra fjallar um eldgosið í Kröflu, uppbyggingu Kröfluvirkjunar og þær deilur sem sköpuðust þar um.

The Weekend Sailor í leikstjórn Bernardo Arsuaga hlaut verðlaun fyrir bestu frásögnina, en hún segir á spennandi hátt frá sigri mexíkósku skúturnar Sayula II í siglingarkeppni umhverfis hnöttinn árið 1974, en Simon Le Bon söngvari Duran Duran er sögumaður myndarinnar.

Leikstjórinn Neil Weisbrod hlaut verðlaun fyrir bestu leikstjórn fyrir mynd sína Life on T3 og myndin Andes Indómito hlaut verðlaun fyrir bestu kvikmyndatöku á hátíðinni, en í henni mátti sjá stórkostlegar myndir af Andesfjöllum. Alls voru 9 myndir sýndar á hátíðinni en þetta er í 10. sinn sem Könnunarsafnið á Húsavík efnir til Landkönnunarhátíðar. Dómnefndina skipuðu þau Örlygur Hnefill Örlygsson framleiðandi, Tira Shubart handritshöfundur og Lois Huneycutt prófessor við Háskólann í Missouri í Bandaríkjunum.

Sambíó

UMMÆLI