Kvöldvaka Jóns Gnarr í Samkomuhúsinu

Kvöldvaka Jóns Gnarr í Samkomuhúsinu

Jón Gnarr stígur á svið Samkomuhússins á laugardagskvöldið með Kvöldvöku sína en sýningin gekk fyrir fullu húsi í Borgarleikhúsinu veturinn 2019.

Kvöldvaka er einstök sýning þar sem áhorfendum gefst tækifæri til að heyra sannar en lygilegar sögur frá hans langa og viðburðaríka ferli. Fáir segja sögur eins skemmtilega og Jón og enn færri hafa frá jafn mörgu athyglisverðu að segja. Jón hefur komið víða við með Tvíhöfða, Fóstbræðrum, sem grínisti, rithöfundur og auðvitað sem borgarstjóri Reykjavíkur svo eitthvað sé nefnt.

Á Kvöldvökunni ætlar sagnamaðurinn Jón að segja sögur af sínu lífi og má með sanni segja að sumt af því sem hann hefur upplifað er alveg hreint lygilegt. Meðal þess er þegar hann var afklæddur á hommaklúbbi í New York, þegar hann átti notalegt spjall við íslenskan nasista sem hitti Hitler, apakött sem kom til Íslands og maðurinn sem hélt að Jón væri í alvörunni Lottó-vinningshafinn Lýður Oddsson.

Leikhúsgestir þurfa að framvísa neikvæðu hraðprófi sem ekki má vera eldra en 48 klst. Nauðsynlegt er að bóka tíma í hraðpróf. Heimapróf eru ekki tekin gild.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó