Kynning á keppendum í dessert keppni Arctic Challenge – Jón Arnar Ómarsson

Kynning á keppendum í dessert keppni Arctic Challenge – Jón Arnar Ómarsson

Næsta laugardag, 1.október, mun Arctic Challenge í samstarfi við Ekruna halda dessert keppni í Verkmenntaskólanum á Akureyri. Hér að neðan má sjá svör Jóns Arnars Ómarssonar.

Jón Arnar Ómarsson

Færð þú þér einhvertíman eftirrétt í forrétt?

– Nei hef aldrei gert það.

Ef þú mættir einungis borða einn eftirrétt alla þína ævi?

– Íslenskar pönnukökur

Hvaða af eftirfarandi er uppáhalds súkkulaðið þitt – Mjólkur súkkulaði, dökkt súkkulaði eða hvítt súkkulaði?

– Mjólkursúkkulaði


Dessert keppnin er opin fyrir almenning og verða allir keppnis-eftirréttir til sýnis eftir keppnina.

Arctic Challenge eru félagssamtök gerð til þess að efla hugvit og ástríðu veitingamanna á Norðurlandi. Tilgangurinn er að búa til grundvöll fyrir samkeppni sem sameinar ástríðu og fagmennsku allra veitingastaða Akureyrar og einnig til að þétta veitingageirann á Akureyri saman.

Þann 10.janúar 2022 var keppnin Arctic Challenge haldin í fyrsta skipti á Strikið Restaurant. Sextán efnilegir keppendur kepptu þá í tveimur greinum keppninnar, Arctic Chef og Arctic Mixologist.

UMMÆLI