Kynning á nýju miðbæjarskipulagi í dagMynd: Kaffid.is / Jónatan.

Kynning á nýju miðbæjarskipulagi í dag

Tillögur að framtíðaruppbyggingu í miðbæ Akureyrar liggja fyrir og verða kynntar á streymisfundi fimmtudaginn 10. desember kl. 17. Fundinum á fimmtudaginn verður streymt á Facebook-síðu Akureyrarbæjar.

Tillögurnar eru settar fram sem drög að breytingu á deiliskipulagi. Skipulagsráð samþykkti í fyrra að hefja vinnu við breytingar á skipulaginu sem tók gildi 2014. Stýrihópur var myndaður í byrjun árs 2020 og skilaði hópurinn niðurstöðum í haust. Breytingar sem nú verða lagðar til eru í samræmi við niðurstöður stýrihópsins. Stefnt er að því að hægt verði að hefja uppbyggingu á hluta svæðisins hið fyrsta.

Sagt verður frá skipulagsvinnunni og ferlinu framundan, tillögurnar kynntar ítarlega og spurningum svarað. Íbúar og aðrir áhugasamir geta spurt spurninga jafn óðum með því að skrifa í athugasemdir (Comment) og verður þeim svarað í lok fundarins.

Sambíó

UMMÆLI