L-listinn á Akureyri hefur nú birt framboðslista sinn fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Þar leiðir fjölmiðlamaðurinn Óðinn Svan Óðinsson hóp fólks með fjölbreyttan bakgrunn úr atvinnulífi, menningu, heilbrigðisþjónustu og skólastarfi.
Efst á lista eru:
- Óðinn Svan Óðinsson – fjölmiðlamaður
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir – bæjarfulltrúi / lífeindafræðingur
- Preben Jón Pétursson – mjólkurtæknifræðingur
- María Pálsdóttir – leikkona / frumkvöðull
- Andri Teitsson – bæjarfulltrúi / verkfræðingur
- Heiðbjört Ósk Ófeigsdóttir – kennari / útgefandi
„L-listinn stillir hér upp öflugu og metnaðarfullu fólki sem vill vinna af festu og framtíðarsýn að því að gera Akureyri enn betri bæ til að búa, starfa og skapa í. Við erum afar stolt af framboðslistanum og hlökkum til að mæta kjósendum í opnu, hreinskilnu og málefnalegu samtali næstu vikurnar,“ segir Óðinn Svan Óðinsson, oddviti L-listans á Akureyri.
Nánari upplýsingar og kynning á frambjóðendum má finna á Facebooksíðu L-listans á Akureyri.
Hér að neðan má sjá lista L-listans í heild:
- Óðinn Svan Óðinsson – fjölmiðlamaður
- Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir – bæjarfulltrúi / lífeindafræðingur
- Preben Jón Pétursson – mjólkurtæknifræðingur
- María Pálsdóttir – leikkona / frumkvöðull
- Andri Teitsson – bæjarfulltrúi / verkfræðingur
- Heiðbjört Ósk Ófeigsdóttir – kennari / rithöfundur
- Geir Kristinn Aðalsteinsson – mannauðsstjóri
- Paula Del Olmo – þjálfari / verkefnastjóri
- Jón Þorvaldur Heiðarsson – lektor við HA
- Guðríður Sveinsdóttir – kennari
- Árni Óðinsson – rafvirki / tæknimaður
- Maríanna Margeirsdóttir – viðskiptafræðingur
- Kristján Valur Kristjánsson – rafvirki
- Anna Hildur Guðmundsdóttir – formaður SÁÁ
- Kristján Sigurólason – atvinnurekandi
- Guðrún Karitas Garðarsdóttir – viðskiptafræðingur
- Aðalgeir Axelsson – kaupmaður
- Ólöf Inga Andrésdóttir – skólastjóri
- Arnar Már Bjarnason – deildarstjóri forvarna- og frístundamála
- Anna Fanney Stefánsdóttir – sjúkraliði
- Víðir Benediktsson – skipstjóri
- Oddur Helgi Halldórsson – blikksmíðameistari / iðnrekstrarfræðingur


COMMENTS