Landsliðspar til KA og KA/Þór

Landsliðspar til KA og KA/Þór

Þau Ólafur Gústafsson og Rut Arnfjörð Jónsdóttir skrifuðu í dag undir samninga við handboltaliðin KA og KA/Þór á Akureyri.

Ólafur skrifaði undir tveggja ára samning við KA en hann kemur til félagsins frá Kolding líkt og Árni Bragi Eyjólfsson sem skrifaði undir samning hjá KA fyrr í vikunni.

Rut skrifaði einnig undir tveggja ára samning og mun spila með KA/Þór. Hún kemur einnig frá Danmörku en hún hefur spilað með meistaraliði Esbjerg frá árinu 2017.

Ólafur á að baki 22 landsleiki fyrir Ísland en Rut á að baki 89 landsleiki þar sem hún hefur skorað 184 mörk.

„Við bjóðum þau Ólaf og Rut hjart­an­lega vel­kom­in norður og hlökk­um mjög til að sjá til þeirra á kom­andi vetri. Þarna eru á ferðinni hörku­leik­menn sem við ætl­umst til mik­ils af og ljóst að sú mikla upp­bygg­ing sem hef­ur átt sér stað hjá karlaliði KA og kvennaliði KA/Þ​órs á und­an­förn­um árum mun halda áfram með þau inn­an­borðs,“ seg­ir meðal ann­ars á heimasíðu KA.

Sambíó

UMMÆLI