Prenthaus

Landsréttur sneri við dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra

Landsréttur sneri við dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra

Landsréttur sakfelldi í gær karlmann fyrir að birta kynferðislegar myndir af fyrrverandi sambýliskonu sinni á Facebook auk þess að senda henni hótanir og ærumeiðingar í smáskilaboðum. Þetta kemur fram á vef RÚV.

Landsréttur sneri við dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra sem hafði áður sýknað manninn. Hann var nú dæmdur til sex mánaða fangelsisvistar en helmingur vistarinnar er skilorðsbundinn.

Forsaga málsins er sú að maðurinn og konan voru í sambúð og eignuðust barn saman. Eftir sambandsslit hafði maðurinn í hótunum við konuna og birti bæði kynferðislegar myndir og upplýsingar um hana á Facebook.

Hann birti nafn hennar, símanúmer og notendanafn á samfélagsmiðlinum Snapchat. Þá bauð hann fylgjendum sínum upp á að fá afnot af myndböndum af konunni og sendi henni hótanir í skilaboðum.

Héraðsdómur sýknaði manninn þar sem ekki þótti fullsannað hvenær brotin hefðu verið framin. Landsréttur hafnaði þeim rökum.

Sambíó

UMMÆLI