Lengri frestur til að sækja um sérstaka tómstundastyrki

Lengri frestur til að sækja um sérstaka tómstundastyrki

Frestur til að sækja um sérstaka íþrótta- og tómstundastyrki fyrir börn sem búa á tekjulægri heimilum hefur verið framlengdur til 15. apríl 2021. Stór hluti þeirra sem eiga rétt á styrknum hefur ekki enn sótt um.

Styrkirnir eru liður í aðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna Covid-19 og koma til viðbótar hefðbundnum frístundastyrkjum sveitarfélaga.

Hægt er að sækja um fyrir börn sem eru fædd 2005-2014 og búa á heimili þar sem heildartekjur voru að meðaltali lægri en 740.000 kr. á mánuði á tímabilinu mars-júlí 2020. Styrkurinn nemur 45.000 krónum á hvert barn. Nota má styrkina til þess að greiða niður þátttökugjöld vegna íþróttaiðkunar, tónlistarnáms eða annarra tómstunda.

Sveitarfélög annast afgreiðslu umsókna. Svona er sótt um hjá Akureyrarbæ:

  • Byrjaðu á að kanna hvort þitt barn eigi rétt á styrk á island.is eða með því að smella hér. Ef viðkomandi á rétt á styrk þá þarf að nálgast staðfestingu á því og skila með umsókn.
  • Næst er farið inn í þjónustugátt Akureyrarbæjar og umsóknarformið opnað (umsóknir -> velferðarmál -> fjárhagsstyrkur til íþrótta- og tómstundaiðkunar).
  • Umsóknarformið er fyllt út. Undir „fylgiskjölum“ þarf að setja inn staðfestinguna (sem var sótt á island.is) og kvittun fyrir greiðslu frá íþrótta- eða tómstundafélögum. Skjölin mega vera pdf eða skjámyndir á jpg formi.

Fólk getur fengið aðstoð hjá velferðarsviði Akureyrarbæjar við að fylla út umsóknirnar í þjónustugáttinni með því að hringja í síma 460-1410.

Hér er hægt að horfa á kynningarmyndbönd um íþrótta- og tómstundastyrkina á nokkrum tungumálum.

Umsóknarfrestur rennur út 15. apríl. 

UMMÆLI