Lilla Stein­ke er Ung­skáld Akur­eyr­ar 2019

Lilla Stein­ke er Ung­skáld Akur­eyr­ar 2019

Lilla Steinke er Ungskáld Akureyrar 2019 en úrslit í ritlistakeppni Ungskálda voru kunngerð á Amtsbókasafninu á Akureyri síðdegis.

Þriðju verðlaun hlaut Daniel Ben fyrir verkið „Hvað ef ég er ekki kona?“, önnur verðlaun komu í hlut Söndru Marínar Kristínardóttur fyrir verkið „Tíu ára tímabil“ og Lilla Steinke hlaut sem áður segir fyrstu verðlaun fyrir ljóðið „Ég heyri rödd þína í rigningunni.“

Ungskáldaverkefnið er hið eina sinnar tegundar á Íslandi en markmiðið með því er að hvetja ungt fólk á aldrinum 16-25 ára til skapandi skrifa. Verkefnið hefur vaxið og dafnað vel á síðustu árum og umfang þess aukist.

Síðasta mánuðinn eða svo hefur ýmislegt verið á döfinni í höfuðstað Norðurlands fyrir ungt fólk með áhuga á ritlist.

Í byrjun nóvember var haldin ritlistasmiðja Ungskálda í Verkmenntaskólanum. Leiðbeinendurnir voru rithöfundarnir Stefán Máni og Bryndís Björgvinsdóttir sem jusu úr viskubrunnum sínum og leiðbeindu ungmennunum. Líkt og áður var smiðjan opin öllum á aldrinum 16-25 ára og þátttakendum að kostnaðarlausu.

Í framhaldinu var blásið til ritlistakeppni Ungskálda. Engar kröfur voru gerðar um að hafa sótt ritlistasmiðjuna, allir á aldrinum 16-25 ára á Norðurlandi eystra höfðu tækifæri til þess að senda inn verk í keppnina. Engar hömlur voru á lengd og formi verka en textinn þurfti þó að sjálfsögðu að vera á íslensku.

Í ár var svo bætt við þeirri nýjung að efna til kaffihúsakvölds Ungskálda en það var haldið fyrr í vikunni og sótt af um 30 manns. Efnileg ungskáld lásu upp eigin verk og annarra og aðrir komu einfaldlega til þess að hlusta og njóta.

Í dómnefnd ritlistakeppninnar að þessu sinni voru þau Sigríður Kristjana Ingimarsdóttir, bókmenntafræðingur, Kristín Árnadóttir, fyrrverandi íslenskukennari við Verkmenntaskólann á Akureyri, og Björn Þorláksson, rithöfundur og fyrrum bæjarlistamaður.

Að verkefninu standa Amtsbókasafnið á Akureyri, Akureyrarstofa, Ungmennahúsið í Rósenborg, Verkmenntaskólinn á Akureyri og Menntaskólinn á Akureyri. Ungskáldaverkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra og Akureyrarbæ.

Mynd og frétt: akureyri.is

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó